FRLA3RB05 - Forritanleg raflagnakerfi II

Rafvirkjabraut

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: Að nemandi hafi öðlast færni í almennum raflögnum, sé fær um að tengja búnað og geti lesið raflagnateikningar og önnur tæknileg skjöl.
Í áfanganum kynnast nemendur forritanlegu hússtjórnarkerfi og búnaði sem samþykktur er af KNX samtökunum. Farið er uppbyggingu á KNX hússtjórnarkerfi ásamt skipulagi teikninga og annara tæknilegra skjala til undirbúnings hönnunar og forritunar á búnaði. Farið er í virkni einstakra íhluta KNX kerfis og forritunarskrár sóttar á heimasíðu framleiðenda ásamt tæknilegum skjölum til að forrita búnaðinn. Búnaður er settur upp í ETS forriti þar sem parametrar eru stilltir og búnaður tengdur saman á viðeigandi hátt. Nemendur tengja búnaðinn ásamt því að hlaða niður forritun og virkja búnað. Farið er í virkni einstakra íhluta og þeir tengdir og forritaðir þannig að nemendur fái þjálfun í að vinna sjálfstætt við uppsetningu og virkjun búnaðar og séu færir um að leiðbeina öðrum um notkun þess. Nemendur tengja saman KNX, DALI og Funk-bus við lausnir verkefna. Farið er í birtu og hitastýringar þar sem áhersla er lögð á viðveru í rýmum og orkusparnað.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • helstu möguleikum forritanlegra hússtjórnarkerfa.
  • Íhlutum hússtjórnarkerfa og vera fær um að tengja og virkja búnaðinn.
  • möguleikum á samtengingu mismunandi hússtjórnarkerfa við lausn verkefna.
  • frágangi tæknilegra skjala og teikninga.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • skipuleggja og ganga frá skjölum ásamt lagnateikningum hússtjórnarkerfa.
  • tengja og ganga frá búnaði.
  • forrita og virkja búnað.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • ráðleggja verkkaupa um uppbyggingu á knx forritanlegu hússtjórnarkerfi og útskýra virkni einstakra íhluta við lausnir verkefna.
  • blanda saman knx, dali og funk-bus hússtjórnarkerfi við lausnir verkefna. forrita búnað þar sem lögð er áhersla á orkusparnað í upphitun rýma og birtustýringar.
Nánari upplýsingar á námskrá.is