HLGS2SF04(AV) - Hlífðargassuða stálsmiða

MIG suða, TIG suða, suðuferilslýsingar

Einingafjöldi: 4
Þrep: 2
Forkröfur: HLGS2MT03
Í áfanganum læra nemendur að undirbúa og sjóða MIG-suðu og Tig-suðu á áli, ryðfríu stáli og einnig á stáli. Þeir læra að sjóða efnisþykktir 2 – 6 mm í stál , ryðfrítt stál og ál samkvæmt gæðaflokki C (ÍST EN 25817) í plötu og rör. Þeir skipuleggja suðuverkefni m.t.t. krafna um gæði, öryggi og umhverfi. Nemendur læra að sjóða eftir suðuferilslýsingum og öðlast þekkingu á kostum mismunandi suðuvíra og aðferða.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • suðuferilslýsingum og gildi þeirra
  • áhrifum mismunandi skögunar vírs á straumstyrk, afköst og innbræðslu
  • eiginleikum úðaboga- og stuttbogasuðu
  • aðferðum til að hreinsa oxíðhúð af áli fyrir suðu
  • helstu suðugöllum í áli og orsökum þeirra
  • aðferðum til að hreinsa oxíðhúð af ryðfríu stáli eftir suðu
  • áhrifum suðu á tæringarþol í ryðfríu stáli
  • gastegundum og gasblöndum sem notaðar eru við suðu á stáli, áli og ryðfríu stáli
  • hlutverki hlífðargassins og stillingum þess
  • hlutum suðubyssunnar, drifbúnaði og leiðara fyrir mig/mag
  • öryggisreglum við meðhöndlun hreinsiefna fyrir ryðfrítt stál
  • helstu hættum og varúðarráðstöfunum vegna geislunar, hita, ósonmyndunar, reyks, ásamt eldfimum efnum, hlífðarfatnaði og hlífum

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • stilla suðutækin þ.e. straum, vírhraða, spennu og straumdempun (viðnám), þannig að hæfi efnisþykkt og suðurauf
  • setja rúlluvír í suðutækin og velja rétta spíssa, drifbúnað og barka
  • sjóða í suðustöðum pa-bw, pa-fw, pb-fw, pc-bw, pf-fw, pf-bw
  • gegnumsjóða 5 mm stálplötu öðru megin frá í suðustöðu pf-bw í v-rauf
  • hreinsa oxíðhúð af áli fyrir suðu
  • hreinsa oxíðhúð af ryðfríu stáli eftir suðu
  • sjóða eftir suðuferilslýsingum

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • stilla gasflæði, velja gashulsu og skaut
  • meta algengustu suðugalla og orsakir þeirra
  • mæla og skrá viðeigandi upplýsingar varðandi suðuverkefnið s.s. spennu, straum, raufarstærð og aðrar upplýsingar fyrir suðuferlislýsingar
  • velja vír m.t.t. efnis og suðuraufar
  • sinna viðhaldi á fylgibúnaði suðuvéla
  • velja rétta spíssa
  • greina suðugalla í áli
  • greina helstu hættur, gera varúðarráðstafanir og nota viðeigandi öryggisbúnað
Nánari upplýsingar á námskrá.is