EFMA1JS04 - Efnisfræði málmiðna

járn, staðlar, stál

Einingafjöldi: 4
Þrep: 1
Í áfanganum öðlast nemendur þekkingu til að velja stál og meðhöndla það á réttan hátt við vinnu sína. Þeir læra að notfæra sér staðla til þess að finna réttan málm fyrir þau verk sem þeir vinna að hverju sinni. Farið er yfir grunnatriði í framleiðslu á járni og stáli, formun þess og mótun, framleiðslu á steypujárni, steypuáli og öðrum málmum, bræðslu og storknun, eiginleika og notkun, svo og varmameðhöndlun á stáli.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • járnsteypu, flokkum hennar og eiginleikum
  • framleiðsluferli stáls, hvað er gert og í hvaða tilgangi
  • uppbyggingu stáls, göllum í atómbyggingu og áhrifum þeirra
  • hersluaðferðum, skilyrðum og stöðlum
  • vinnsluhæfni stáls og almenna vinnslu þess, þ.m.t. herslu, suðuhæfni, kostum og ókostum álmelma og ryðfrís stáls

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • lesa úr stöðlum
  • segja til um herslumöguleika
  • skoða áhrif mismunandi álags á efnið

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • velja stál, ryðfrítt stál, ál og aðra málma eftir stöðlum
  • velja hvaða efni hentar best fyrir mismunandi aðstæður og notkun
  • ákveða hvort hagkvæmt sé að steypa hlut eða vinna hann úr stáli
  • velja á milli smíðastáls, áls og ryðfrís
Nánari upplýsingar á námskrá.is