VÉLF1AE05(AV) - Vélfræði 1

aflfræði og eldsneyti

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: VÉLS2KB05, STÆF2RH05
Nemendur öðlast fræðilega og hagnýta grunnþekkingu í vélfræði. Fjallað er um mismunandi form orku, afls og orkunýtingu til að auka skilning á þessum hugtökum. Lögmál varmafræðinnar um óforgengileika orkunnar eru kynnt ásamt SI-mælieiningakerfinu. Eldsneytisnotkun bulluvéla og orkuforði. Fjallað er um nýtni bulluvéla, pV-línurit og pt-línurit. Meðalþrýstingur pmi fundinn í pV-línuriti með lóðlínuaðferðinni. Reiknað framleitt afl dísilvéla. Samhengi þrýstings og hitastigs. Fast og fljótandi eldsneyti úr kolefnissamböndum. Fjallað er um vinnslu á olíu og hvað mælikvarðarnir oktantala, setantala og dísilindex segja til um brunaeiginleika eldsneytis.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • þeim þáttum sem hafa áhrif á aflframleiðslu véla
  • orkunýtingu og eldsneytisnotkun bulluvéla
  • samhengi aflframleiðslu og hinna ýmsu stærða bulluvéla
  • aðferðum við mælingar á meðalþrýstingi
  • áhrifum mismunandi álags á gerð pv-línurits
  • lögmálum varmafræðinnar um varðveislu orkunnar
  • aflmælingum véla með notkun hemla
  • þjöppunarhlutfalli og rúmmálsmælingum á vélum
  • samhengi aflframleiðslu, álags og hvernig inngrip í aflframleiðsluna hefur áhrif á starfsemi vélarinnar
  • eldsneytisnotkun, orkutapi og orkunýtingu
  • eldsneytisgerðum, olíutegundum og staðbundnum einkennum olíu
  • oktantölu, cetantölu og dieselindex
  • vinnslu á fljótandi eldsneyti og helstu eiginleikum þess

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • snúa formúlum
  • lesa út úr ritmynd vélar
  • mæla ritmyndir og fundið pi, pmax, pþjapp
  • leiða út formúlur sem fyrir koma í námsefninu og beita þeim við kausn verkefna
  • reikna út forðaradíus

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • útskýra samhengi þrýstings og hitastigs og finna þjöppunarhlutfall
  • nýta ritmyndir til einfaldra bilanagreininga
  • setja fram útreikning á skipulagðan og snyrtilegan hátt
  • útskýra gildi breyta í formúlum
Nánari upplýsingar á námskrá.is