matargerðarlist og áhrifavaldar
Einingafjöldi: 2
Þrep: 2
Í áfanganum er fjallað um sögu matargerðarlistarinnar og helstu áhrifavalda hennar. Lögð er áhersla á íslenska matarmenningu sem hluta af ímynd þjóðar. Fjallað er um mismunandi menningarheima og áhrif trúarbragða á matarhefðir og val á hráefni.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- meginstraumum í alþjóðlegri matargerð og áhrifum þeirra á íslenska matargerð fyrr og nú
- nauðsyn þess að viðhalda íslenskri matarmenningu sem hluta af ímynd þjóðar
- matarháttum ólíkra menningarheima og áhrifum trúarbragða á matarhefðir og val á hráefni
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- gera grein fyrir einkennum íslenskrar matargerðar sem hluta af ímynd þjóðar
- gera grein fyrir mikilvægi svæðisbundinnar matarmenningar og tengslum milli menningar og þróunar í matargerð
- gera grein fyrir matarháttum ólíkra menningarheima og áhrifum trúarbragða á fæðuval og fæðuhegðun
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- greina meginstrauma í alþjóðlegri matargerð og meint áhrif þeirra á íslenska matarmenningu
- greina matarhætti ólíkra menningarheima og áhrif trúarbragða á þá
- tengja saman menningu og þróun í matargerð
Nánari upplýsingar á námskrá.is