MEIS4KL06(AV) - Kennsla og leiðsögn

Kennsla, Leiðsögn

Einingafjöldi: 6
Þrep: 4
Nemandi þekki námskröfur og uppbyggingu náms til sveinsprófs í iðngrein sinni og viti hvernig skóli og iðnfyrirtæki þurfa að vinna saman að menntun einstaklingsins. Nemandi kynnist lögum, reglugerðum, námskröfum og uppbyggingu náms til sveinsprófs í iðngrein sinni. Hann þekkir réttindi og skyldur iðnmeistara og iðnnema í vinnustaðanámi/starfsþjálfun og hlutverk hvers og eins er kemur að færslum í ferilbók. Hann getur skipulagt þjálfun og greint færnikröfur í sinni grein og valið viðeigandi aðferðir við leiðsögn og þjálfun nema. Hann kann að leggja mat á námsþarfir iðnnema með hliðsjón af námskrá og getur gert heildstæða þjálfunaráætlun. Hann veit hvernig meistari getur búið iðnnema æskileg skilyrði til náms og þroska í námi sínu og kann aðferðir til að miðla þekkingu og annast handleiðslu í samræmi við námsþarfir nemendans og námskröfur iðngreinarinnar. Hann þekkir bestu aðferðir til að meta nám og námsframfarir og hvernig hann getur notað hvatningu og endurgjöf til að stuðla að námi nemenda sinna. Hann er meðvitaður um að einstaklingsmunur nemenda getur kallað á mismunandi vinnubrögð við skipulag náms þeirra.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • kennslu, kennslufræði og þekki helstu kenningar um hvernig nám fer fram.
  • lögum og reglugerðum um samninga iðnnema við meistara og þekki reglur um gerð samninga um vinnustaðanám og sé fær um að gera slíka samninga.
  • skipulagi náms til sveinsprófs í eigin iðngrein og kunni skil á markmiðum, innihaldi, uppbyggingu og samspili náms í skóla og náms eða þjálfunar hjá iðnmeistara eða iðnfyrirtæki.
  • á hvern hátt mannleg samskipti, sjálfsmynd, áhugi og hvatning hafa áhrif á nám og námsárangur.
  • hvað átt er við þegar talað er um þjálfunaráætlun nemenda og vera fær um að gera slíka áætlun fyrir nemendur sína.
  • námskrá/ferilbók í iðngrein sinni og geti skipulagt nám nemenda út frá þeim kröfum sem gerðar eru í þessum gögnum.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • kenna, þjálfa og leiðbeina nemendum í iðngrein sinni. hann þarf einnig að leiðbeina öðrum starfsmönnum sem starfa á hans starfssviði.
  • meta þarfir hvers iðnnema fyrir sig og gera heildstæða náms- og þjálfunaráætlun sem hæfir einstaklingnum hverju sinni.
  • velja kennsluaðferðir sem viðgangast í faggreininni og nota sem fjölbreyttastar aðferðir við kennslu og þjálfun í fagi sínu hverju sinni.
  • nota hvatningarþætti við störf/þjálfun og kennslu. skilji hvernig mismunandi tjáskipti, orðalag, tóntegund og hátterni leiðbeinandans geta haft áhrif á sjálftraust/sjálfmynd og líðan nemandans með beinum og óbeinum hætti í námi hans.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • sjá um kennslu og þjálfun iðnnema í iðngrein sinni eftir þeim faglegu kröfum og viðmiðum sem iðngreinin gerir kröfur um hverju sinni. einnig að sjá um þjálfun og kennslu annarra starfsmanns er undir hann heyra.
  • skipuleggja nám nemandans heildstætt, þ.e. þann tíma sem áætlað er að nemandi sé annars vegar í vinnustaðahluta námsins og hins vegar í skólahlutanum. einnig að fylla út ferilmöppu nemandans jöfnum höndum á meðan á náminu stendur.
  • leggja mat á árangur nemenda í náminu og vera meðvitaður og tilbúinn að leiðbeina frekar um ákveðna þætti ef þörf er á til þess að tryggt verði að nemandinn nái að tileinka sér mismunandi verkþætti sem iðngreinin gerir kröfur um.
Nánari upplýsingar á námskrá.is