MEIS4ST06(AV) - Stjórnun

Stjórnun

Einingafjöldi: 6
Þrep: 4
Viðfangsefni áfangans miðast við undirbúa fólk fyrir stjórnunarstörf í samfélaginu, gera það meðvitað um mikilvægi sjálfbærni og samfélaga ábyrgð. Fjallað er um mikilvægi góðarar stjórnunar og að ákvarðanir séu teknar að vel athuguðu máli. Farið er í grunnhugtök og kenningar í stjórnun. s.s. skipurit, valddreifingu, markmiðasetningu og hvatningu. Nemandanum eru kynnt gildi stjórnunar og skipulagningar fyrir einstaklinginn og fyrirtækið, hann fær innsýn í hlutverk, verksvið og ábyrgð stjórnenda fyrirtækja í mannauðsstjórnum og verkefnastjórnun. Sérstök áhersla er lögð á persónuþróun, nemandinn lærir að meta og þekkja kosti sína og galla, tileinka sér verkefna- og tímastjórnun og setja sér markmið.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • kostum sínum og göllum.
  • hlutverki sínu í hópavinnu.
  • mikilvægi stjórnunar fyrir einstaklinginn, fyrirtækið og samfélagið.
  • helstu stjórnunarkenningum og stílum.
  • mikilvægi valddreifingar.
  • mikilvægi markmiðasetningar.
  • undirgreinum stjórnunar.
  • helstu skipuritum um dreifingu valds og ábyrgðar.
  • grunnatriðum mannauðsstjórnunar.
  • verkefnastjórnun.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • setja sér markmið.
  • skipuleggja tíma sinn.
  • stýra fundum
  • taka starfsmannaviðtöl.
  • skrifa fundagerðir.
  • gera svót greiningu.
  • setja saman verkáætlun.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • fjalla um hlutverk og störf stjórnanda með gagnrýnum augum.
  • rökræða helstu stjórnunarstíla.
  • leysa af hendi starfsmannaviðtöl.
  • vera ábyrgur fyrir fundarstjórnun.
  • meta vandamál með gerð svÓt greiningar.
  • taka þátt í skipulagningu á verkefni með gerð verkáætlunar og geta dregið saman upplýsingar til úrvinnslu og upplýstrar ákvörðunartöku.
  • öðlast skilning á hlutverki stjórnanda.
Nánari upplýsingar á námskrá.is