EÐLI2VS05 - Hreyfifræði og aflfræði

Hreyfifræði, aflfræði, ljós, mælieiningar

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: STÆR2AF05
Þetta er grunnáfangi í eðlisfræði á náttúruvísindabraut. Í áfanganum er lagður grunnur að hreyfifræði, aflfræði og ljósfræði og lögð áhersla á að nemendur tileinki sér góð vinnubrögð í verkefnavinnu sem gagnist þeim til frekara náms.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • einingum í si-kerfinu, markverðum tölustöfum, stigstærðum og vigurstærðum.
  • hreyfifræði í einni vídd.
  • lögmálum newtons, þyngdarkrafti, þverkrafti, núningskrafti og núningstuðli.
  • vinnu, orku, afli og orkuvarðveislu.
  • lögmáli hookes, kraftstuðli, fjaðurkrafti og spennuorku.
  • atlagi, skriðþunga og árekstrum.
  • lögmáli arkimedesar, uppdrifi og þrýstingi.
  • helstu lögmálum um eðli ljóss.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • nota markverða tölustafi og réttar einingar við úrlausn verkefna.
  • framkvæma verklegar æfingar og vinna úr mæliniðurstöðum þeirra.
  • setja fram og túlka gröf sem lýsa hreyfingu hlutar í einni vídd.
  • nota lögmál og hugtök námsefnisins á réttan hátt við úrlausn verkefna.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • meta hvort niðurstöður mælinga og útreikninga séu raunhæfar.
  • beita skipulögðum aðferðum við úrlausn verkefna, geta rökstutt aðferðirnar og túlkað niðurstöðurnar.
  • gera sér grein fyrir notagildi eðlisfræðinnar og tengslum hennar við daglegt líf.
Nánari upplýsingar á námskrá.is