Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var slitið í 47. skipti við hátíðlega athöfn í dag, föstudaginn 29. maí. Alls útskrifaðist 161 nemandi frá skólanum. Selma Barðdal, skólameistari setti athöfnina og Laufey Leifsdóttir, aðstoðarskólameistari, flutti annáll skólaársins. Tæpti Laufey þar á hinu fjölbreytta starfi sem fór fram við skólann á nýafstöðnum vetri. Auk almenns skólastarfs var sagt frá náms- og kynnisferðum nemenda og kennara innan- og utanlands og félagslífi nemenda.
Lára Sigurðardóttir, Ragnhildur Sigurlaug Guttormsdóttir, Arna Ísabella Jóhannesdóttir og Steinunn Daníela Jóhannesdóttir fluttu falleg tónlistaratriði við athöfnina. Stúlkurnar sem allar eru nemendur við skólann settu menningarlegan blæ á athöfnina með atriðum sínum. Auk þess flutti Steinunn Daníela og Sigríður Hrafnhildur Stefánsdóttir ávarp fyrir hönd brautskráningarnema þar sem þær sögðu frá skemmtilegum minningum síðustu ára í skólanum. Aðalsteinn Arnarson flutti ávarp fyrir hönd 20 ára brautskráningarnema og rifjaði upp skólabraginn í FNV á árum sínum sem nemenda.
Nokkrir af starfsmönnum skólans kveðja skólann eftir þetta skólaár og voru þeim færðar hinar bestu þakkir. Íris Helma Ómarsdóttir hefur starfað við skólann í rúmlega 28 ár við kennslu í stærðfræði og viðskiptagreinum, en einnig sinnti hún störfum áfangastjóra. Sigríður Svavarsdóttir lætur af störfum við FNV eftir 46 ár, en kenndi þar áður við framhaldsdeild sem var starfrækt við skólann. Sirrý kenndi lengi vel á viðskipta- og hagfræðibraut skólans, kenndi lífsleikni, upplýsingatækni, í meistaraskólanum, en eftir að hún hætti kennslu tók hún við umsjón með fjarnámi. Gunnar Gunnarsson lætur af störfum eftir 20 ár. Hann hefur gegnt starfi umsjónarmanns fasteigna auk þess að hafa kennt eftir að lokið námi við húsasmíði við skólann.
Hápunktur skólaslitanna er alltaf formleg brautskráning nemenda þar sem skólameistari afhenti þeim útskriftarskírteini og viðurkenningar fyrir námsárangur.
Eftirtaldir nemendur hlutu viðurkenningar fyrir framúrskarandi frammistöðu í námi:
Anton Smári Evertsson
Viðurkenning fyrir framúrskarandi námsárangur í ensku á stúdentsprófi
Arndís Katla Óskarsdóttir
Viðurkenning fyrir framúrskarandi námsárangur í spænsku á stúdentsprófi
Árni Gísli Brynleifsson
Viðurkenning fyrir framúrskarandi námsárangur í sérgreinum rafvirkjunar
Bjarney Alda Benediktsdóttir
Viðurkenning fyrir framúrskarandi alhliða námsárangur í sjúkraliðanámi
Elísa Bríet Björnsdóttir
Viðurkenning fyrir framúrskarandi námsárangur í stærðfræði á stúdentsprófi
Menntaverðlaun Háskóla Íslands fyrir framúrskarandi árangur á stúdentsprófi og eftirtektarverðan árangur í knattspyrnu.
Emelía Björk Elefsen Hjartardóttir
Viðurkenning fyrir framúrskarandi alhliða námsárangur á stúdentsprófi náttúruvísindabrautar
Óskar Már Friðþjófsson
Viðurkenning fyrir framúrskarandi námsárangur í dönsku á stúdentsprófi
Viðurkenning fyrir framúrskarandi námsárangur í íslensku á stúdentsprófi
Viðurkenning fyrir framúrskarandi námsárangur í stærðfræði á stúdentsprófi
Viðurkenning fyrir framúrskarandi námsárangur í sérgreinum náttúruvísindabrautar
Raungreinaverðlaun Háskólans í Reykjavík fyrir framúrskarandi árangur í raungreinum á stúdentsprófi
Salvar Karl Smith
Viðurkenning fyrir framúrskarandi alhliða námsárangur í rafvirkjun
Sindri Þór Guðmundsson
Viðurkenning fyrir framúrskarandi alhliða námsárangur í vélstjórn
Viðurkenning fyrir framúrskarandi alhliða námsárangur í vélvirkjun
Steinunn Daníela Jóhannesdóttir
Viðurkenning og þakkir fyrir framúrskarandi störf á vettvangi félagsmála nemenda, forystu fyrir Nemendafélag FNV og alla framgöngu á vettvangi skólastarfs
Sunneva Dís Halldórsdóttir
Viðurkenning fyrir framúrskarandi námsárangur í spænsku á stúdentsprófi
Viktor Smári Þórðarson
Viðurkenning fyrir framúrskarandi námsárangur í þýsku á stúdentsprófi
Þórhildur Ingadóttir
Viðurkenning fyrir framúrskarandi námsárangur í sérgreinum sjúkraliðanáms