Erla Hrund Þórarinsdóttir hefur verið ráðin fjármálastjóri Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og tekur til starfa í dag, 1. október.
Erla býr yfir víðtækri reynslu af fjármálum, reikningsskilum og endurskoðun. Erla starfaði áður hjá Byggðastofnun sem umsjónarmaður áhættustýringar frá árinu 2023. Þar áður starfaði hún sem fjármálasérfræðingur hjá Sveitarfélaginu Skagafirði á árunum 2020–2023 og á endurskoðunarsviði KPMG frá 2017–2020. Hún hefur einnig starfað hjá Íbúðalánasjóði, bæði sem ráðgjafi á viðskiptasviði og þjónustufulltrúi.
Erla er með BSc-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í reikningsskilum og endurskoðun frá Háskólanum í Reykjavík. Þá hefur hún einnig lokið námi í ferla- og gæðastjórnun við Opna háskólann.
Við bjóðum Erlu hjartanlega velkomna til starfa við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og hlökkum til samstarfsins.