Gettu betur hópur FNV. Frá vinstri: Daníel Smári Sveinsson, Ingimar Eyberg Ingólfsson, Páll Pálmason, Lára Sigurðardóttir, Snædís Katrín Konráðsdóttir og Emma Katrín Helgadóttir.
Lið Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra keppti í gærkvöldi í 16 liða úrslitum Gettu betur gegn Borgarholtsskóla í beinni útsendingu á rás 2.
Lið FNV lét í minni pokann eftir jafna og skemmtilega keppni. Liðið náði sér ekki á strik í hraðaspurningunum og leiddi Borgarholtsskóli með sjö stigum gegn þremur að þeim loknum. Leikar jöfnuðust í bjölluspurningum og úr varð spennandi viðureign sem endaði 13-7 fyrir Borgarholtsskóla.
FNV hefur því lokið keppni í Gettu betur þennan veturinn.
Liðið allt getur gengið stolt frá borði enda þreyttu þau sem kepptu fyrir okkar hönd öll frumraun í keppninni. Meirihluti þeirra nemenda sem æfðu fyrir Gettu betur á þessu skólaári munu snúa tvíefldir til baka á því næsta.
FNV óskar liðinu öllu og Ágústi Inga, kennara og þjálfara liðsins, til hamingju með flottan árangur.