Fullt hús á frumsýningu á Stellu í orlofi

Nemendafélag FNV frumsýndi leikritið Stella í orlofi í kvöld við frábærar undirtektir. 
Ingi Sigþór Gunnarsson og Ísak Agnarsson leikstýrðu verkinu og var þetta þeirra frumraun í leikstjórn sem tókst einstaklega vel. 
Ísak og Ingi Sigþór

Fullt hús var á sýningunni og greinilegt að áhorfendur skemmtu sér konunglega. Stemningin í salnum var frábær og uppskar leikhópurinn verðskuldað lófatak að henni lokinni. Stjórn nemendafélagsins og aðrir nemendur skólans hafa lagt mikla og góða vinnu í uppsetninguna, bæði á sviðinu sjálfu og bak við tjöldin, og því var sérstaklega gaman að sjá þau uppskera vel í kvöld.

Fleiri sýningar eru framundan og hvetjum við áhugasama að tryggja sér miða á næstu sýningar.