Heimsókn í Steinullarverksmiðjuna

Nemendur á 4. önn í trédeild FNV fóru nýverið í heimsókn í Steinullarverksmiðjuna þar sem þeir fengu fræðslu um starfsemi fyrirtækisins og innsýn í framleiðsluferli steinullar.

Vettvangsheimsóknir eru mikilvægur hluti af náminu þar sem nemendur fá innsýn í starfsemi fyrirtækja og sjá hvernig námið tengist verkefnum og störfum í atvinnulífinu.

Við þökkum starfsfólki Steinullar fyrir góðar móttökur og fróðlega kynningu.