Helgarnám í vélstjórn A og rafvirkjun

Mynd frá helgarnámi í rafvirkjun
Mynd frá helgarnámi í rafvirkjun

Helgarnám vélstjórn A

Forsendur:

Nemandi skal vera 23 ára1 að aldri og hafa reynslu af starfi tengdu vélstjórn.

Kennslufyrirkomulag:

Kennt er um helgar og hefst kennsla kl 15.00 á föstudögum og er kennt til kl. 22.00 með  hálftíma matarhlé um kl. 19.00. Á laugardögum  hefst kennsla kl 08:00 og er kennt til kl. 18.00.  Á sunnudögum hefst kennsla kl. 08:00  og lýkur kl. 17:00.  Báða dagana  er klukkustundar hádegishlé um kl. 12.00.

Námsfyrirkomulag:

Kennt er samkvæmt aðalnámskrá, bæði verklegar greinar og fagbóklegar greinar í staðlotum. 

Í verklegum greinum er skilyrði að nemendur mæti 100%. Sömu námskröfur eru gerðar til allra nemenda skólans og allir nemendur fara í gegnum sama námsmat. Um er að ræða sex helgar.

Námstími er tvær annir. Skráningargjald er kr. 50.000 á önn.

Sótt er um á skrifstofu skólans og í síma 455-8000.  Umsóknarfrestur er til 15. júní 2020.  Nánari upplýsingar veitir Geir Eyjólfsson í síma 894 5832.

1 Afmælisdagur gildir.

Helgarnám í rafvirkjun

Forsendur:

Nemandi skal vera 23 ára1 að aldri.

Kennslufyrirkomulag:

Kennt er um helgar og hefst kennsla kl 15.00 á föstudögum og er kennt til kl. 22.00 með  hálftíma matarhlé um kl. 19.00. Á laugardögum  hefst kennsla kl 08:00 og er kennt til kl. 18.00.  Á sunnudögum hefst kennsla kl. 08:00  og lýkur kl. 17:00.  Báða dagana  er klukkustundar hádegishlé um kl. 12.00.

Námsfyrirkomulag:

Kennt er samkvæmt aðalnámskrá, bæði verklegar greinar og fagbóklegar greinar í staðlotum. 

Aðrar almennar greinar s.s. íslensku, tungumál og stærðfræði þurfa nemendur að taka í hefðbundnu dagskólanámi, í fjarnámi eða hjá símenntunarstöðvum. Í verklegum greinum er skilyrði að nemendur mæti 100%. Sömu námskröfur eru gerðar til allra nemenda skólans og allir nemendur fara í gegnum sama námsmat. Um er að ræða sex helgar.  Námstími er sex annir.

Skráningargjald er kr. 50.000 á önn.

Sótt er um á skrifstofu skólans og í síma 455-8000.  Umsóknarfrestur er til 15. Júní 2020.  Nánari upplýsingar veitir Garðar Páll Jónsson í síma 894-6206.

1 Afmælisdagur gildir.