Húsasmíðanemar FNV kynntust bátasmíði á Siglufirði

Nemendur á húsasmíðabraut Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra fóru á dögunum í fræðandi og skemmtilega heimsókn til Siglufjarðar. Markmið ferðarinnar var að kynna nemendum handverk bátasmiða og þá þekkingu og verkkunnáttu sem því fylgir.

Lagt var af stað frá Sauðárkróki klukkan átta að morgni og komið til Siglufjarðar um klukkan níu. Þar tók Vitafélagið á móti hópnum við Síldarkaffi þar sem nemendum og kennurum var boðið upp á góðan morgunverð áður en dagskrá dagsins hófst.

Nemendum var síðan skipt í tvo hópa. Annar hópurinn fór út að róa og fékk þannig að kynnast sjómennsku og bátum frá öðru sjónarhorni. Hinn hópurinn kynntist bátasmíði og fékk innsýn í þær aðferðir, verkfæri og verkkunnáttu sem þarf við smíði og viðhald trébáta.

Í hádeginu hittust hóparnir aftur í Síldarkaffi þar sem boðið var upp á dýrindis súpu að hætti hússins. Að hádegisverði loknum var skipt um stöðvar þannig að allir nemendur fengu að taka þátt í báðum verkefnum dagsins.

Eftir að stöðvavinnunni lauk var haldið á Síldarminjasafn Íslands. Heimsóknin hófst í Bátahúsinu þar sem hópurinn fékk áhugaverða innsýn í sögu síldaráranna, bátanna og þeirra atvinnuhátta sem mótuðu samfélagið á Siglufirði. Að því loknu gafst nemendum tækifæri til að skoða aðra hluta safnsins og kynna sér þessa mikilvægu sögu enn frekar.

Ein helsta ástæða heimsóknarinnar var að vekja athygli nemenda á bátasmíði sem handverksgrein. Mikilvægt er að sú þekking og verkkunnátta sem fylgir hefðbundinni bátasmíði glatist ekki. Vonandi hefur heimsóknin vakið áhuga einhverra nemenda á að kynna sér greinina enn frekar og jafnvel leggja hana fyrir sig í framtíðinni.

Veðrið lék við hópinn og dagurinn heppnaðist einstaklega vel. Frábærar móttökur voru á öllum þeim stöðum sem heimsóttir voru og færum við Vitafélaginu, starfsfólki Síldarkaffis og Síldarminjasafni Íslands bestu þakkir fyrir höfðinglegar móttökur og fróðlegan og skemmtilegan dag.