Auglýsing um námskeið í trefjaplastsmíði
Auglýsing um námskeið í trefjaplastsmíði

Lýsing:

Fjölbrautaskóli Norðurlands býður upp á námskeið í trefjaplastsmíði á vorönn 2023 í samvinnu við Iðuna, Samtök iðnaðarins og Samgöngustofu. Markmið námskeiðsins er að þátttakendur geti að námskeiði loknu unnið sjálfstætt að smíði og viðgerðum á skipum eða öðrum mannvirkjum sem smíðuð eru úr trefjaplasti. Þeir sem hafa lokið slíku námskeiði, hafa sótt nám í grunnteikningu og sem geta lagt fram staðfestingu um fullnægjandi starfstíma við trefjaplastsmíði eiga rétt á að fá viðurkenningu Samgöngustofu sem plastbátasmiður.

Umfang námsins svarar til 184 kennslustunda undir leiðsögn kennara. Þessu til viðbótar kemur heimavinna þátttakenda.

Inntökuskilyrði:

Gerð er krafa um a.m.k. 12 mánaða starfstíma við trefjaplastsmíðar. Lágmarksaldur nemenda er 25 ár. Við val á þátttakendum er m.a. tekið tillit til starfstíma, nám tengt skipasmíði og í öðrum iðngreinum. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður við 16 nemendur.

Umsækjendur þurfa að hafa gott vald á íslensku, geta lesið ensku og vera starfandi við plastbátasmíði.  Í verklegar kennslustundir þurfa þátttakendur að hafa með sér viðurkenndar persónuhlífar  á borð við grímur, hanska, öryggisskó, viðeigandi kolasíur og þess háttar.  

Skipulag:

Bóklegi hluti námsins fer fram í um sjö vikna skeið í gegnum fjarfundabúnað á milli kl 17:30 og 21:30 mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga. Þeir sem sækja námið skulu hafa fullnægjandi aðstöðu til þess að sækja kennslu í gegnum fjarfundabúnað.

Verklega námið fer fram í Reykjavik. Kennt er í einni lotu frá laugardegi til föstudags í 8 klst. á dag í 7 daga.

Þegar sótt er um þarf að taka eftirfarandi fram:

  • Nafn:
  • Kennitala:
  • Heimilisfang:
  • Símanúmer:
  • Netfang:
  • Fyrirtæki :
  • Fjöldi ára við trefjaplastsmíði:
  • Menntun: 

Námsmat fer fram í formi símats.

Gerð er krafa um a.m.k. 95% skólasókn og 100% verkefnaskil.