Fyrsta Vísinda- og nýsköpunarþingið var haldið í Grósku í Reykjavík föstudaginn 25. september undir yfirskriftinni „Frá þekkingu til lausna – ungt fólk mótar framtíðina“. FNV átti tvo fulltrúa á þinginu, nemendurna Birnu Lind Hafdísardóttur og Hilmar Örn Hreiðarsson.
Á þinginu komu saman ungmenni, fulltrúar vísindasamfélagsins, atvinnulífsins og stjórnvalda til að ræða hvernig þekking, vísindi og nýsköpun geta stuðlað að lausnum á áskorunum framtíðarinnar.

Dagskrá þingsins var tvískipt. Annars vegar voru flutt erindi um vísindi, nýsköpun og framtíðaráskoranir og hins vegar tóku nemendurnir þátt í hópastarfi. Þar ræddu þau framtíð vísinda og nýsköpunar á Íslandi, skiptust á hugmyndum og sjónarmiðum og unnu saman að niðurstöðum. Að hópastarfinu loknu kynnti hver hópur sínar niðurstöður fyrir hinum hópunum.

Birna Lind og Hilmar Örn voru ánægð með þátttökuna og þótti gaman að fá tækifæri til að ræða og vinna með öðrum ungmennum að hugmyndum um framtíð vísinda og nýsköpunar. Þau stóðu sig vel og voru flottir fulltrúar FNV á þinginu.