Sjálfvirkar rafhlöðuhleðslustöðvar teknar í notkun í rafmagnsdeild

Í rafmagnsdeild FNV er, eins og gefur að skilja, mikil notkun á rafhlöðum sem notaðar eru í hinum ýmsu kennsluverkefnum og getur kostnaður hlaupið á háum fjárhæðum til lengri tíma ef einnota rafhlöður eru notaðar. Nú gæti orðið breyting á. 

Nýverið festi skólinn kaup á Ostation X, sjálfvirkum hleðslustöðvum fyrir AA og AAA hleðslurafhlöður. Með þeim er stefnt að því að lækka kostnað  og jafnframt draga úr umhverfisáhrifum, þar sem rafhlöðurnar fara ekki lengur í spilliefnagám heldur eru endurnýttar.

Hleðslustöðvarnar eru einfaldar og þægilegar í notkun, enda alsjálfvirkar. Rafhlöðunum er komið fyrir í efri hluta stöðvarinnar og þegar fullri hleðslu er náð færast þær sjálfkrafa niður í neðri hluta stöðvarinnar, þar sem þær bíða þess að vera teknar í notkun á ný.