Dagskrá fyrstu daga haustannar 2026

17. ágúst – Heimavist opnar fyrir nýnema

Heimavistin opnar fyrir nýnema (fædda 2010 eða síðar) mánudaginn 17. ágúst kl. 17:00. Nýnemar eiga von á tölvupósti með frekari upplýsingum fyrir vikulok. Fyrir eldri nemendur opnar heimavistin þriðjudaginn 18. ágúst kl. 17:00.

17. ágúst – Fundur með foreldrum nýnema

Fundur fyrir foreldra nýnema verður haldinn í Bóknámshúsi FNV mánudaginn 17. ágúst kl.19-20. Fundarboð með Teams-hlekk verður sendur til foredra og þau sem ekki eiga heimagengt geta tekið þátt í gegnum Teams.

18. ágúst: Opnað fyrir stundatöflur og óskir um töflubreytingar í INNU

Stundatöflur verða aðgengilegar í INNU í síðasta lagi, þriðjudaginn 18. ágúst og þá verður einnig hægt að óska eftir töflubreytingum. Töflubreytingar fara fram í INNU 18.-21. ágúst. Einnig verður hægt að fá aðstoð við töflubreytingar þá viku.  

18. - 19. ágúst – Nýnemadagar

Nýnemadagar eru ætlaðir nýnemum sem koma beint úr grunnskóla. Þeir hefjast þriðjudaginn 18. ágúst kl. 9:00 í Bóknámshúsi FNV. Nánari dagskrá verður auglýst síðar.

19. ágúst – Skólasetning

Skólasetning verður á sal Bóknámshúss FNV miðvikudaginn 19. ágúst kl. 8:00. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá kl. 8:45.

 19. ágústSíðasti dagur fyrir dagskólanema til að velja fjarnámsáfanga

Helgarnemar í húsasmíði hafa fengið tölvupóst með upplýsingum um kennslufyrirkomulag haustannar en helgarnemar í rafvirkjun eiga von á tölvupósti á næstu dögum.

 

Hlökkum til að hitta ykkur öll!