Dagana 18. - 22. mars fóru 3 nemendur og 3 kennarar FNV í heimsókn í skólann Storg vgs. í Vestland Noregi á vegum erasmus+.
Verkefnið nefnist Inclusion – A human right and opportunity for all og er samstarfsverkefni með kennurum og nemendum frá Þýskalandi, Tékklandi, Ungverjalandi og Belgíu.
Í verkefninu vinna nemendur að þróun lausna sem bæta aðgengi og aðstæður fyrir fólk í hjólastól. Verkefnið hefur gengið afar vel í vetur og var þessi ferð framhald af heimsókn til Ungverjalands í nóvember. Í ferðinni kynntu nemendur skólana sína, vinnu sína frá síðustu ferð og næstu skref en lokahluti verkefnisins fer fram í Tékklandi í september þar sem niðurstöður verða kynntar.
Í ferðinni fengu þátttakendur að skoða nýjan verknámsskóla sem opnaður var í september, þar sem lögð var áhersla á gott samstarf við hönnuði og starfsfólk við að skapa nútímalegt og aðgengilegt námsumhverfi. Sérstök áhersla var lögð á hljóðvist, vinnuaðstöðu og sameiginleg rými nemenda og starfsfólks.
Nemendur fengu jafnframt tækifæri til að kynnast nærsamfélaginu. Farið var á skauta og í heimsókn til fyrirtækja þar sem fólk með fötlun fær tækifæri til atvinnu, meðal annars hjá Podlen og Sæbø. Þau eru í góðum tengslum við önnur fyrirtæki og einstaklinga á svæðinu sem veita þjónustu eins og þvottahús, eldiviðarframleiðslu og reka einnig verslun með vörum sem þau framleiða.
Fiskeldisfyrirtækisins Engesund var heimsótt og þar fengu nemendur leiðsögn og fræðslu um starfsemina. Á staðnum er jafnframt safn tengt fiskeldinu og veitingastaður þar sem hægt er að njóta afurða fyrirtækisins við fiskeldiskvíarnar.
Ferðin í heild gekk mjög vel og voru þátttakendur virkilega ánægðir með móttökurnar hjá norsku gestgjöfunum.

Þeir sem fóru í ferðina voru:
Björn Sighvatz
Signý Sif Sævarsdóttir
Karítas Sigurbjörg Björnsdóttir
Ívar Hrafn Ágústsson
Andri Pétur Zakarías Ágústsson
Efemía Ösp Rúnarsdóttir