Lokaverkefni vélstjórnarnema - stöðugleiki skipa

Fimm nemendur í vélstjórn við FNV kynntu nýverið lokaverkefni sitt í áfanganum Stöðugleiki skipa.
Í desember síðastliðnum var ákveðið að fara nýja leið í verkefnavinnunni og í stað hefðbundinnar ritgerðar hönnuðu og þrívíddarprentuðu nemendurnir báta með það að markmiði að þeir væru stöðugir í vatni og héldust uppréttir á floti.

Verkefnið var unnið í góðu samstarfi við Fab Lab Sauðárkróki, þar sem Karítas tók vel á móti nemendum og studdi við framkvæmd verkefnisins.
Í gegnum verkefnið öðluðust nemendur dýpri skilning á hönnunarforritinu Inventor og undirbúningi fyrir þrívíddarprentun í PrusaSlicer.

Sérstök áhersla var lögð á að skilja uppdrifskraft og áhrif hans á stöðugleika skipa, en uppdrifskraftur ræðst af því magni vökva sem hlutur ryður frá sér. Þessi þekking var lykilatriði í hönnun bátanna, auk þess sem nemendur þurftu að gera ráð fyrir þyngingu til að tryggja að skipin stæðu rétt á floti.

Bátarnir Freyja, Þór, Arnar, Hallur og Leki voru afrakstur verkefnisins og stóðust þeir allir flotprófið.

Bátarnir á floti

Verkefnið er gott dæmi um hvernig verklegt nám, nýsköpun og samvinna getur skapað áhugaverð og lærdómsrík verkefni fyrir nemendur.