Óskar Már Friðþjófsson, sem útskrifaðist frá Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra í vor, er einn 29 nýnema sem hljóta 400.000 kr. styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands í ár.
Óskar Már náði framúrskarandi árangri í námi við FNV og hlaut við útskrift viðurkenningar fyrir námsárangur í dönsku, íslensku, stærðfræði og náttúruvísindagreinum. Hann var jafnframt virkur í félagslífi skólans. Óskar hefur mikinn áhuga á verkfræði og hefur nú hafið nám í rafmagns- og tölvuverkfræði við Háskóla Íslands.
FNV sendir Óskari Má innilegar hamingjuóskir.