Sara Kristjánsdóttir er nemi á fjórða ári í þroskaþjálfafræðum frá HÍ og er nú í 6 vikna starfsnámi á starfsbraut FNV.
Á haustönn vann hún samvinnurannsókn með 3 nemendum á starfsbraut, sem var hluti af hennar námi, þar sem spurt var um félagslíf nemenda á starfsbraut eftir skóla.
Nýlega kynnti hún verkefnið, samstarfið við nemendurnar og niðurstöðurnar fyrir starfsfólki starfsbrautar, nemendaþjónustu og stjórnendum skólans.
Virkilega flott samstarfsverkefni þar sem nemendur voru virkjaðir til þátttöku og niðurstöðurnar gáfu ákveðna vísbendingu um félagslega stöðu nemenda sem áhugavert væri að skoða áfram og nýta til að efla starfsemi og þjónustu við nemendur.