Kennsla á vorönn 2020 hefst mánudaginn 6. janúar kl. 9:45. Á mánudeginum verður kennt skv. stundaskrá mánudags og þriðjudag á þann hátt að fyrri kennslustundin t.d. kl. 09:45 er skv. stundaskrá mánudags en sú seinni kl. 10.30 skv. stundaskrá þriðjudags og svo áfram þann daginn.

Stundaskrár verða aðgengilegar í Innu sunnudaginn 5. janúar. Töflubreytingar verða mánudag og þriðjudag. Nemendur geta sjálfir óskað eftir töflubreytingum í INNU eftir að hún hefur verið opnuð á sunnudag.

Nemendur fá aðstoð við töflubreytingar í bóknámshúsi, stofu 101, mánudag og þriðjudag kl. 10 - 12 og 13 - 14.