Tindastóll spilar æfingaleik við Skallagrím á Hvammstanga föstudaginn 7. september kl 19:00.
Klukkutíma fyrir leik, kl 18.00 verður stutt kynning á Akademíu körfubolta, sem er samstarfsverkefni FNV og Tindastóls.
Um kynninguna sjá nemendur FNV í akademíu, leikmenn og þjálfarar Tindastóls og starfsfólk FNV.
Kynningin verður í íþróttahúsinu og er opin öllum.