Kynning á háskólahermi
Kynning á háskólahermi

Kynning á háskólahermi verður miðvikudaginn 15.janúar kl. 10:30 í stofu 205.

Háskólahermirinn er hugsaður fyrir nemendur í framhaldsskóla sem eru um það bil hálfnaðir með nám sitt. Í háskólaherminum gefst nemendum í framhaldsskólum tækifæri til þess að kynnast námsframboði Háskóla Íslands og vera þátttakendur í háskólasamfélaginu. Eftir heimsóknina ættu nemendur að hafa góða innsýn í námsframboð HÍ og fá hugmyndir um hvað nám á mismunandi sviðum felur í sér.
Háskólahermirinn verður haldinn dagana 30. og 31.janúar 2020.