Skólasetning fer fram á sal Bóknámshúss kl. 09:00 mánudaginn 19. ágúst. Kynningarfundur fyrir nýnema verður haldinn á sal skólans kl. 09.30-10.30.
Kennsla hefst þriðjudaginn 20. ágúst kl. 8:00 samkvæmt stundaskrá. Stundatöflur verða aðgengilegar í Innu sunnudaginn 18. ágúst.
Nemendur geta skráð  óskir um töflubreytingar í Innu frá og með sunnudegi. Aðstoð við töflubreytingar verður í tölvuveri bóknámshúsi mánudag og þriðjudag kl. 10-12 og 13-15. Umsjónarmenn dreifnáms aðstoða umsjónarnemendur sína á Blönduósi, Hvammstanga og Hólmavík.
Á þriðjudeginum verður kennt skv. stundatöflu mánudags og þriðjudag á þann hátt að fyrri kennslustundin t.d. kl. 08:00 er skv. stundatöflu mánudags en sú seinni kl. 08:45 skv. stundaskrá þriðjudags.