Umsóknarfrestur sveinsprófs í byggingargreinum

Sveinspróf verða haldin í eftirfarandi byggingargreinum í maí og júní ef næg þátttaka fæst:

  • Múraraiðn 25.-29. maí
  • Pípulagnir 3.-5. júní
  • Húsasmíði 5.-7. júní
  • Málaraiðn maí/júní
  • Húsgagnasmíði júní
  • Veggfóðrun og dúkalagnir maí/júní

Umsóknarfrestur er til 1. apríl 2020, óskað er eftir að umsóknir verði sendar í tölvupósti á idan@idan.is eða í bréfpósti.

Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu IÐUNNAR fræðsluseturs, www.idan.is.Með umsókn skal leggja fram afrit af námssamningi, lífeyrissjóðsyfirlit og burtfararskírteini með einkunnum eða staðfestingu skóla á því að nemi muni útskrifast í maí 2020.

Kostnaður próftaka s.s. efniskostnaður er mismunandi eftir iðngreinum.

Dagsetningar sem ekki eru fyrirliggjandi verða birtar á heimasíðunni www.idan.is um leið og þær liggja fyrir.