Bókagjöf til tréiðnaðardeildar - bækur um forn vinnubrögð í tré og járni

Tréiðnadeild Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra barst nýlega vegleg gjöf þegar þrjár bækur eftir húsasmíðameistarann og eldsmiðinn Gunnar Bjarnason voru afhentar skólanum. Gjöfin kemur frá Kristínu Sverrisdóttur, ekkju Gunnars.

Bækurnar gefa áhugaverða innsýn í ævistarf Gunnars og fjalla meðal annars um hefðbundin vinnubrögð við húsaviðgerðir, eldsmiðju og smíði fornaldarvopna. Titlar þeirra eru Hinn taktfasti dans hamars á steðja, Framtíð fyrir fortíð okkar og Fornaldarsverð. Í þeim er lögð áhersla á nákvæmni, handverk og virðingu fyrir hefðbundnum aðferðum við smíðar og viðhald bygginga.

Efni bókanna byggir á gögnum sem Gunnar lét eftir sig um húsaviðgerðir, eldsmiðju og smíði tilgátuhúsa. Gögnin voru afhent Þjóðminjasafn Íslands og eru mikilvæg heimild um hefðbundið íslenskt handverk og byggingaraðferðir.

Tréiðnadeild FNV þakkar Kristínu Sverrisdóttur kærlega fyrir þessa höfðinglegu gjöf. Bækurnar munu nýtast vel í kennslu og stuðla að aukinni umræðu um mikilvægi þess að varðveita þekkingu á eldri vinnubrögðum og byggingararfi Íslands.