Brautskráning og skólaslit 2026

Brautskráning og skólaslit Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra verða föstudaginn 29. maí nk. kl. 13, í íþróttahúsinu á Sauðárkróki.
Gert er ráð fyrir undirbúningi og myndatöku kl. 11 sama dag en nánari upplýsingar verða sendar til brautskráningarnema þegar nær dregur.

Við biðjum þá sem sjá sér ekki fært um að taka þátt í athöfninni, að láta skrifstofu skólans vita, fyrir 15. maí með því að hringja í 455-8000 eða senda tölvupóst á fnv@fnv.is. 

Allir velunnarar skólans og aðstandendur velkomnir.