Danskir nemendur frá Mercantec í heimsókn í FNV

FNV fékk nýverið í heimsókn hóp danskra nemenda frá Mercantec í Viborg ásamt kennurum þeirra. Heimsóknin stóð yfir í tvo daga og var dagskráin fjölbreytt, þar sem danskir og íslenskir nemendur fengu meðal annars tækifæri til að vinna saman, kynnast skólastarfi hvors annars og bera saman sameiginlega sögu Íslands og Danmerkur.

Nemendur í áföngunum Menningarsaga og Íslands- og mannkynssaga 1800–2000 unnu verkefni með dönsku gestunum undir leiðsögn Ágústs Inga. Viðfangsefnið var sameiginleg saga landanna og unnu nemendur í blönduðum hópum að því að bera saman ólíka atburði og sjónarhorn.

Meðal þess sem tekið var fyrir voru dönsku grunnlögin frá 1849 og Þjóðfundurinn 1851, þátttaka Dana í Napóleonsstríðunum og koma Jörgens Jörgensen til Íslands árið 1809. Einnig báru nemendur saman stöðu Íslands og Danmerkur í júní 1944, þegar lýðveldi var stofnað á Íslandi á meðan Danmörk var enn hernumin af Þýskalandi. Að loknu námi og umræðum í blönduðum hópum kynntu þau niðurstöður sínar fyrir samnemendum.

Umræðurnar leiddu meðal annars í ljós ólíka þekkingu og sýn nemenda á sameiginlega sögu landanna. Dönsku nemendurnir þekktu til að mynda betur til Slésvíkurstríðanna á 19. öld en sjálfstæðisbaráttu Íslendinga, en voru fróðari um hana eftir samvinnuna.

Fjölbreytt dagskrá beið gestanna utan sögutímans en þau unnu að sérhönnuðum lyklakippum í FabLab með Karítas og tóku þátt í tímum hjá Evu með okkar nemendum, þar sem farið var í ýmsa leiki og verkefni á ensku.

Þau fengu einnig að fylgjast með tilraun í jarðfræði hjá Helga Páli og kíktu í reiðmennskutíma hjá Hafdísi. Þá heimsótti hópurinn lagareldi við Háskólann á Hólum í boði Evu Kuttner og fékk jafnframt tækifæri til að kynnast náttúru og umhverfi Sauðárkróks.

Heimsóknin gaf nemendum beggja skóla tækifæri til að kynnast fólki og skólastarfi í öðru landi, æfa sig í samskiptum á ensku og skiptast á reynslu, þekkingu og hugmyndum.

Við þökkum nemendum og kennurum Mercantec kærlega fyrir komuna og öllum þeim sem tóku þátt í að gera heimsóknina að veruleika.

Tak til vores danske venner!