Erasmus hópurinn í Staðarbjargavík
Erasmus hópurinn í Staðarbjargavík

Góðir gestir heimsóttu FNV dagana 12. - 17. september en þar voru á ferðinni nemendur og kennarar í tveimur Erasmusverkefnum, alls 24 frá Englandi, Eistlandi, Litháen, Portúgal, Tékklandi og Spáni.
Annað verkefnið er forritunarverkefni, Girls with boys programming Europe. Sunna Gylfadóttir er verkefnisstjóri af hálfu FNV.
Hitt verkefnið er handverksverkefni, Using ICT to preserve European craftmansship. Kristján Bjarni Halldórsson er verkefnisstjóri FNV.
Gestirnir gistu á heimavist, á gistihúsum og heimahúsi.
Dagskráin var þétt. Vinnustofur voru þrívíddarprentun og Fablab í umsjón Karítasar Sigurbjargar Björnsdóttur, Eldsmíði í umsjón Björns Sighvatz, sýndarveruleiki og 360 gráðu kvikmyndir í umsjón Árna Gunnarssonar og Python forritun í umsjón Grétars Karlssonar. Einnig kynnti Halldór Snær Kristjánsson starfsemi leikjafyrirtækisins Myrkur Games.
Ýmis konar afþreying var í boði, s.s. Lundasýningin, gönguferð um Skógarhlíð og Sauðárkrók, púttkeppni á golfvellinum, sund í Hofsósi, heimsókn til Arndísar í Vatnsleysu, Glaumbæjarsafn, Reykjafoss, Grettislaug o.fl.
Hádegismatur var yfirleitt í mötuneytinu en einnig var borðað á ýmsum öðrum veitingastöðum í Skagafirði.
Nemendur FNV tóku vel á móti nemendum hinna landanna m.a. með því skipuleggja partýkvöld og að bjóða þeim að taka þátt í viðburðum sem nemendafélagið NFNV stóð fyrir.
Gestirnir voru alsælir með dvölina og nokkrir náðu að skoða eldgosið á Reykjanesi áður þeir héldu af landi brott.
Framundan á skólaárinu eru þrjár ferðir í hvoru verkefni þar sem nemendur og kennarar FNV fara utan.