Merki verkefnisins
Merki verkefnisins

Dagana 29. september til 3. október 2025 tókum við á móti gestum í Erasmus+ verkefninu ICT IV.

Verkefnið hófst formlega þegar gestirnir frá Tékklandi, Spáni og Póllandi komu til Suðárkróks á mánudeginum. Dagskráin hófst svo á þriðjudeginum kl. 9:00 með því að skólameistari bauð gestina velkomna og svo fengu þeir kynningu á skólanum. Í kjölfarið var skipt í lið (alþjóðleg pör) og skoðunarferð um skólann. Svo var farið í heimsókn til FISK Seafood þarf sem við fengum kynningu á hvernig upplýsingatækni og gervigreind er nýtt við fiskveiðar.

Eftir hádegi var skapandi vinnustofa þar sem þátttakendur bjuggu til sína eigin stuttermaboli. Nemendur unnu með teikniforrit við hönnunina og unnu síðan saman að prentuninni sjálfri.

Miðvikudagurinn var aðallega helgaður keppnishluta verkefnisins. Um morguninn var alþjóðleg keppni og samhliða fundur kennara. Verkefnin fyrir keppnina beindust að notkun gervigreindar í Excel, PowerPoint og Power BI forritum. Klukkan 11:00 var svo vinnustofa um notkun dróna í kvikmyndagerð og mat á keppninni. Eftir hádegismat fluttu þátttakendur sig í sýndarveruleikasafnið 1238: Orrustan um Ísland.

Dagskrá fimmtudagsins var dagsferð til Akureyrar. Ferðin hófst með heimsókn í Glaumbæjarsafn (hefðbundin íslensk hús frá 18. og 19. öld). Klukkan 13:00 heimsóttum við DriftEA, miðstöð frumkvöðla og nýsköpunar. Við nutum jólastemningarinnar í Jólagarðinum og slökuðum á í heitum pottum. Deginum lauk með hátíðarkvöldverði þar sem viðurkenningar voru veittar og úrslit alþjóðlegu keppninnar kynnt.

Á dagskrá föstudagsins voru lokaverkefni og brottför. Um morguninn var vinnustofa um notkun gervigreindar við myndbandsgerð. Eftir hádegismat var skoðunarferð um Sauðárkrók á dagskrá.

Markmið fundarins var að nemendur og kennarar myndu vinna saman að verkefnum, vinnustofum með áherslu á nútímatækni og gervigreind og fræðast um íslenska menningu, menntun og frumkvöðlastarf á svæðinu.

Erasmus+