Gettu betur lið FNV. Frá vinstri: Alexander Victor, Steinunn Daníella og Atli Steinn
Gettu betur lið FNV. Frá vinstri: Alexander Victor, Steinunn Daníella og Atli Steinn

FNV mætir MA í fyrstu umferð Gettu betur og fer viðureignin fram á morgun, miðvikudaginn 10. janúar, í Menntaskólanum á Akureyri. Lið FNV skipa þau Alexander Victor Jóhannesson, Steinunn Daníella Jóhannesdóttir og Atli Steinn Stefánsson.

Hefð hefur skapast síðustu ár að keppnislið okkar mætir úrvalsliði starfmanna í upphitunarkeppni og verður sú rimma líka háð á morgun, miðvikudaginn 10. janúar, klukkan 11 í stofu 302. Lið starfsfólk skipa þær Lee Ann, Sunna og Guðbjörg Einars.

Ákveðið hefur verið að bjóða upp á rútuferð á miðvikudaginn frá bóknámshúsi FNV kl. 16.30 sem mun ferja nemendur á Akureyri til þess að horfa á keppnina. Ath. nemendur greiða fyrir mat.

Fyrir þá sem ekki komast í ferðina þá verður keppninni streymt á heimasíðu RÚV.

Áfram FNV!!

Augýsing fyrir Gettu betur