Lilja Diljá Ómarsdóttir - mynd frá idan.is
Lilja Diljá Ómarsdóttir útskrifaðist úr vélvirkjun með vélstjórn B-réttindi og sem tæknistúdent frá FNV árið 2024.
Nýverið tók hún þótt í verkefni sem nefnist „Ævintýri í Evrópu“ á vegum Iðunnar fræðsluseturs sem býður upp á Erasmus+ styrki fyrir iðnnema og nýsveina. Hún fór í þriggja mánaða starfsnámsferð í Essen í þýskalandi og starfaði hjá fyrirtæki sem sinnir fjölbreyttum verkefnum á sviði málmiðnaðar í borginni og nágrenni hennar.
Í hlaðvarpi Iðunnar segir Lilja frá þessu skemmtilega ævintýri, reynslunni af því að starfa í nýju umhverfi og þeim tækifærum sem iðnnám getur opnað, bæði hér heima og erlendis.
Við hjá FNV erum afar stolt af árangri Lilju og hvetjum áhugasama til að hlusta á þáttinn og kynna sér þau fjölbreyttu tækifæri sem iðnnám getur boðið upp á.
Hlustið á hlaðvarpið hér:
https://www.podbean.com/ew/pb-h3c5a-1a4371e