Nemendur FNV heimsóttu Blöndustöð

Nemendur í raf- og málmiðn FNV heimsóttu Blöndustöð þann 12. nóvember síðastliðinn.
Í heimsókninni fengu nemendur leiðsögn um stöðina og kynntust starfseminni þar. Að skoðunarferð lokinni var hópnum boðið í hádegismat.
Heimsóknin var í boði Landsvirkjunar og er liður í því að kynna starfsemi fyrirtækisins fyrir nemendum í raf- og málmiðngreinum.

Við þökkum Landsvirkjun kærlega fyrir góðar móttökur og fróðlega heimsókn.