Brautskráningarnemar 2021
Brautskráningarnemar 2021

Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var slitið í 42. sinn við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki föstudaginn 28. maí 2021. Vegna sóttvarnareglna voru einungis nemendur og nokkrir starfsmenn skólans viðstaddir en athöfninni var streymt til annarra.

Í máli skólameistara, Ingileifar Oddsdóttur, kom m.a. fram að 2844 nemendur hafa brautskráðst frá skólanum frá upphafi skólahalds haustið 1979. Skólameistari fjallaði m.a. um áhrif COVID-19 á skólastarfið og þakkaði nemendum fyrir þrautseigjuna við þær aðstæður. Þá þakkaði hún fyrirtækjum, stofnunum og sveitarfélögum fyrir afar ánægjulegt samstarf. Loks greindi frá nýrri reglugerð um vinnustaðanám og þörf fyrir stækkun verknámshúss skólans í ljósi mikillar aðsóknar í verknámsdeildir skólans. Að lokum kvaddi hún starfsmenn sem láta af störfum og þakkaði þeim vel unnin störf, en þeir eru Árni Stefánsson íþóttakennari, Björn Björnsson tréiðnakennari, Gróa Guðmunda Haraldsdóttir heimavistarstjóri, Gísli Árnason rafiðnakennari og Adolf Berndsen skólanefndarmaður.

Kristján Bjarni Halldórsson flutti vetrarannál skólans þar sem stiklað var á stóru í starfsemi hans. Þar kom m.a. fram að á haustönn voru 559 nemendur við skólann. Á stúdentsbrautum voru 125 nemendur, í iðnnámi 148 nemendur, í sjúkraliðanámi 121 nemandi, og í hreinu fjarnámi 149 nemendur. Í kvikmynda- og nýsköpunarnámi voru 8 nemendur, á starfsbraut 13 nemendurog nemendur í almennu námi voru 6 talsins. Grunnskólanemendur sem stunduðu nám við skólann á haustönn voru 29 talsins. Nemendur í námsverum á Blönduósi, Hvammstanga og Hólmavík veru meðtaldir í þessum tölum. Á vorönn 2021 stunduðu 576 nemendur nám við skólann.
Við skólann störfuðu 65 starfsmenn í 53 stöðugildum á haustönn og 54 stöðugildun á vorönn.

Að loknum vetrarannál fór fram brautskráning og afhending viðurkenninga, sem var í höndum skólameistara. Alls brautskráðust 100 nemendur af eftirtöldum námsbrautum sem hér segir, en alls voru gefin út 109 prófskírteini:

  • Stúdentsprófsbrautir: 45
  • Húsasmíði: 28
  • Húsgagnasmíði: 1
  • Kvikmyndabraut: 3
  • Nýsköpunarbraut: 1
  • Rafvirkjun: 6
  • Sjúkraliðabraut: 16
  • Starfsbraut: 1
  • Vélvirkjun og vélstjórn: 8

Freydís Þóra Bergsdóttir og Arnar Freyr Guðmundsson fluttu ávarp fyrir hönd brautskráðra nemenda.

Að lokum flutti skólameistari brautskráðum nemendum heilræði fyrir lífið, óskaði þeim velfarnaðar og sagði skólanum slitið.

Eftirtaldir nemendur fengu viðurkenningar:

Freyja Margrét Vilhjálmsdóttir
  • Viðurkenning fyrir framúrskarandi námsárangur í sérgreinum sjúkraliðabrautar
Jódís Helga Káradóttir
  • Viðurkenning frá Danska sendiráðinu fyrir framúrskarandi námsárangur í dönsku á stúdentsprófi
Jón Egill Indriðason
  • Viðurkenning fyrir framúrskarandi námsárangur í sérgreinum vélvirkjabrautar
Rannveig Sigrún Stefánsdóttir:
  • Viðurkenning fyrir framúrskarandi alhliða námsárangur á stúdentsprófi fjölgreinabrautar.
  • Menntaverðlaun Háskóla Íslands fyrir framúrskarandi námsárangur á stúdentsprófi.
  • Viðurkenning fyrir framúrskarandi námsárangur í íslensku á stúdentsprófi.
  • Viðurkenning fyrir framúrskarandi námsárangur í ensku á stúdentsprófi
Rúna Birna Finnsdóttir:
  • Viðurkenning fyrir framúrskarandi námsárangur í sérgreinum rafvirkjunar.
Sólrún Silfá Guðmundsdóttir
  • Viðurkenning fyrir framúrskarandi alhliða námsárangur á stúdentsprófi náttúruvísindabrautar.
  • Raungreinaverðlaun Háskólans í Reykjavík fyrir framúrskarandi námsárangur í raungreinum á stúdentsprófi.
  • Viðurkenning fyrir framúrskarandi námsárangur í stærðfræði á stúdentsprófi.
  • Viðurkenning fyrir framúrskarandi námsárangur í ensku á stúdentsprófi.
  • Viðurkenning fyrir framúrskarandi námsárangur í þýsku á stúdentsprófi
Stefán Ármann Hjaltason
  • Viðurkenning fyrir framúrskarandi námsárangur í sérgreinum í húsasmíði