Brautskráningarnemar 2025
Brautskráningarnemar 2025

Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var slitið við hátiðlega athöfn miðvikudaginn 28. maí. Frá skólanum brautskráðust 161 nemandi af öllum brautum skólans. Ingileif Oddsdóttir, skólameistari, og Þorkell V. Þorsteinsson, aðstoðarskólameistari, stýrðu athöfninni og kvöddu um leið skólann þar sem þau láta bæði af störfum að loknu þessu skólaári. Aðrir starfsmenn sem láta af störfum eru Geir Eyjólfsson, Kristján Bjarni Halldórsson, Rakel Runólfsdóttir og Sunna Gylfadóttir. Íris Helma Ómarsdóttir og Kristján Bjarni Halldórsson, áfangastjórar, fóru yfir starfsemi skólans í vetur.

Arna Ísabella Jóhannesdóttir, Áróra Ingibjörg Birgisdóttir, Flóra Rún Haraldsdóttir, Ísak Agnarsson, Rebekka Helena Barðdal Róbertsdóttir og Steinunn Daníela Jóhannesdóttir fluttu falleg tónlistaratriði við athöfnina. Þau eru öll nemendur skólans. Ávörp brautskráningarnema voru í höndum þeirra Fannars Orra Péturssonar og Hrafnhildar Ísabellu Harðardóttur. Sr. Sigríður Gunnarsdóttir flutti ávarp fyrir hönd 30 ára brautskráningarnema.

Eftirtaldir nemendur hlutu viðurkenningar fyrir framúrskarandi námsárangur

  • Anna Marie Gruenberger, fyrir spænsku á stúdentsprófi
  • Arna Þorsteinsdóttir, fyrir alhliða námsárangur á stúdentsprófi félagsvísindabrautar, íslensku, ensku, þýsku og eftirtektarverða þátttöku í tónlist
  • Auður Ásta Þorsteinsdóttir, fyrir alhliða námsárangur á stúdentsprófi náttúruvísindabrautar, raungreinar, stærðfræði, ensku, dönsku og þýsku
  • Björn Guðnason, fyrir sérgreinar í húsasmíði
  • Bragi Már Ottesen Valbjörnsson, fyrir sérgreinar rafvirkjunar
  • Dorota Rutkowska, fyrir alhliða námsárangur í sjúkraliðanámi
  • Janus Æsir Broddason, fyrir alhliða námsárangur í húsasmíði
  • Klara Sigurðardóttir, fyrir sérgreinar félagsvísindabrautar, þýsku og ensku
  • Kristinn Darri Þorsteinsson, fyrir sérgreinar rafvirkjunar
  • Patrick Gabriel Bors, fyrir sérgreinar húsasmíði
  • Þórey Helgadóttir, fyrir sérgreinar sjúkraliðanáms

Að auki hlaut Fannar Orri Pétursson viðurkenningu fyrir framúrskarandi störf á vettvangi félagsmála, forystu nemendafélagsins og framgöngu á vettvangi skólastarfs.