Skrifstofa FNV verður lokuð frá 25. júní til og með 7. ágúst næstkomandi vegna sumarleyfa.
Innritun fyrir haustönn er lokið og búið er að loka fyrir umsóknir í stað- og fjarnám. Reikningar vegna skólagjalda hafa verið sendir út til allra nemenda eða foreldra/forsjáraðila þeirra.
Við óskum nemendum, starfsfólki og velunnurum skólans gleðilegs sumars og hlökkum til að taka á móti nemendum á ný á haustönn.
Dagskrá fyrstu daga haustannar 2026
17. ágúst – Heimavist opnar fyrir nýnema
Heimavistin opnar fyrir nýnema (fædda 2010 eða síðar) mánudaginn 17. ágúst kl. 17:00. Fyrir eldri nemendur opnar heimavistin þriðjudaginn 18. ágúst kl. 17:00.
17. ágúst – Fundur með foreldrum nýnema
Fundur fyrir foreldra nýnema verður haldinn í Bóknámshúsi FNV mánudaginn 17. ágúst. Foreldrar fá fundarboð í tölvupósti þegar nær dregur.
18.–19. ágúst – Nýnemadagar
Nýnemadagar eru ætlaðir nýnemum sem koma beint úr grunnskóla. Þeir hefjast þriðjudaginn 17. ágúst kl. 9:00 í Bóknámshúsi FNV. Nánari dagskrá verður auglýst síðar.
19. ágúst – Skólasetning
Skólasetning verður á sal Bóknámshúss FNV miðvikudaginn 19. ágúst kl. 8:00. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá kl. 8:45.