Dagana 14. - 23. október fer fram val fyrir dagskóla á vorönn 2021. Val í fjarnámi opnar 1. nóvember.

Listi yfir áfanga í boði er hér og lýsingu á nýjum valáföngum má sjá hér.

Leiðbeiningar: Opnið Innu og finnið val fyrir vorönn 2021. 

  1. Veljið áfanga úr listanum með því að smella á hann.
  2. Veljið hvort áfanginn er Aðalval eða Varaval með því að draga hann til.
  3. Til að eyða áfanga skal smella á x.
  4. Til að fá nánari upplýsingar er farið með músarbendilinn yfir áfangann.
  5. Smellið á Vista val þegar búið er að velja alla áfangana.
  6. Ath. að fjöldi áfanga í varavali á að vera minnst 1 og mest 3.

Aðstoð við val

  • Nýnemar fá aðstoð við val í lífsleiknitímum.
  • Nemendur í iðngreinum fái aðstoð deildarstjóra.
  • Nemendur á starfsbraut fái aðstoð deildarstjóra.
  • Aðrir geta þeir leitað til námsráðgjafa, félagsráðgjafa, áfangastjóra eða aðstoðarskólameistara ef þeir lenda í vandræðum .