Tveggja ára Erasmus+ samstarfsverkefni, þar sem nemendur og kennarar FNV hafa unnið með skólum frá fimm öðrum Evrópulöndum að tæknilausnum fyrir hjólastólanotendur, er nú lokið. Verkefninu lauk með ferð til Tékklands þar sem þátttakendur kynntu afrakstur vinnunnar á lokaráðstefnu.
Verkefnið hefur verið bæði lærdómsríkt og viðburðaríkt og fært þátttakendum dýrmæta reynslu og ný kynni. Hér á eftir segja þátttakendur frá verkefninu, lokaferðinni og því sem stendur upp úr eftir tveggja ára samstarf.
Karítas Sigurbjörg Björnsdóttir, einn kennara FNV og þátttakenda í verkefninu, segir hér frá lokaferðinni til Tékklands, samstarfinu og þeirri reynslu sem verkefnið hefur fært hópnum á undanförnum tveimur árum:
Nú er komið að leiðarlokum að sinni. Tveggja ára verkefni er komið í höfn og fjölmargir hafa komið að því. Í verkefninu tóku þátt nemendur og kennarar frá Íslandi, Noregi, Tékklandi, Þýskalandi, Belgíu og Ungverjalandi.
Okkar verkefni fólst í því að hanna og smíða samanbrjótanlega festingu fyrir hjólastól með standi fyrir snjalltæki, snúanlegum fjarlægðarnema og hljóðviðvörun sem lætur vita ef hindrun verður á vegi þess sem stýrir stólnum. Markmiðið var að auðvelda hjólastólanotendum að nýta sér tækni, svo sem kortaforrit, með sem öruggustum hætti.

Meðal annarra verkefna voru bremsubúnaður sem kemur í veg fyrir að hjólastóll renni aftur á bak í brekkum eða halla, búnaður sem dregur stólinn saman um 5–10 sentímetra svo auðveldara sé að komast í gegnum þrengsli og fjarskiptabúnaður sem ætlað er að veita notandanum aðstoð og aukið öryggi í daglegu lífi.
Lokaráðstefna í Tékklandi
Verkefninu lauk að þessu sinni í Uherské Hradiště í Tékklandi þar sem haldin var vegleg ráðstefna. Þar voru verkefni allra þátttökulandanna kynnt og árangri og niðurstöðum gerð góð skil. Fjölmörgum gestum var boðið á ráðstefnuna og skólarnir settu einnig upp kynningarbása þar sem þeir kynntu heimalönd sín, skóla og menningu.
Við heimsóttum einnig fyrirtækið Altech, sem er staðsett á svæðinu og sérhæfir sig í að hanna og þróa ýmsar lausnir sem auðvelda fólki að komast um stiga. Við gáfum okkur líka tíma til að rölta um bæinn og nemendur heimsóttu þekkt flugvélasafn.
Að heimsókninni lokinni héldum við með lest til Vínarborgar og flugum þaðan heim með millilendingu í Helsinki.
Dýrmæt reynsla og góðar minningar
Að taka þátt í svona verkefni er bæði gefandi og krefjandi. Allir þátttökuskólarnir eru staðsettir í fremur afskekktum bæjum og því verða ferðalögin oft í lengri kantinum. Á móti kemur hversu vel hefur verið tekið á móti okkur alls staðar þar sem við höfum komið og viljum við þakka kærlega fyrir þær góðu móttökur.
Stór hluti af verkefni sem þessu er að kynnast mannlífi og menningu annarra landa. Það tel ég hafa tekist frábærlega enda hafa margir þátttakendur eignast nýja vini og góðar minningar úr ferðalögunum.
Á þessum tveimur árum höfum við heimsótt alla samstarfsskólana, tekið á móti gestum hér á landi, haldið ráðstefnu og kynnt verkefnið bæði fyrir nærsamfélaginu og nemendum skólans.
Við erum ánægð og sátt með að hafa lokið okkar hluta verkefnisins og fengið tækifæri til að deila afrakstrinum með samstarfsfélögum okkar. Við þökkum þeim öllum fyrir gott og farsælt samstarf.
Karítas Sigurbjörg Björnsdóttir
Björn Sighvatz
Signý Sif Sævardóttir
Gunnar Bjarki Hrannarsson
Efemía Ösp Rúnarsdóttir
Ragnheiður Anna Steinsdóttir
Og allir hinir sem hafa unnið og ferðast í tengslum við verkefnið.