Undirbúningsnámskeið fyrir sveinspróf í húsasmíði.

Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra mun halda undirbúningsnámskeið fyrir sveinspróf í húsasmíði 02. júní til 05. júní 2025 í verknámshúsi FNV.
Kennsla hefst mánudaginn 2. júní kl. 10:00 og lýkur fimmtudaginn 5. júní.
Námskeiðsgjald er kr. 50.000
Skráning fer fram á skrifstofu skólans í síma 455-8000 eða með tölvupósti á fnv@fnv.is.
Síðasti skráningardagur er 26 maí 2025.