Mynd af skólasvæðinu
Mynd af skólasvæðinu

Dagskrá fyrstu daga haustannar 2025:

17. ágúst kl. 17:00: Heimavist opnar fyrir nýnema

Heimavistin opnar fyrir nýnema (fæddir 2009 eða síðar) sunnudaginn 17. ágúst klukkan 17:00 en fyrir eldri nemendur mánudaginn 18. ágúst kl. 17:00.

17. ágúst kl. 19:00: Fundur með foreldrum nýnema

Fundur fyrir foreldra nýnema verður haldinn í Bóknámshúsi FNV sunnudaginn 17. ágúst kl. 19:00. Foreldrar fá fundarboð með tölvupósti þegar nær dregur.

18.–19. ágúst: Nýnemadagar

Nýnemadagar eru ætlaðir nýnemum sem koma beint úr grunnskóla. Þeir hefjast mánudaginn 18. ágúst í Bóknámshúsi FNV kl. 9 en nemendur á Blönduósi mæta á dreifnámsstöð. Nánari dagskrá verður auglýst síðar.

19. ágúst kl. 8:00: Skólasetning

Skólasetning verður á sal Bóknámshúss FNV klukkan 8:00 þriðjudaginn 19. ágúst og kennsla hefst samkvæmt stundaskrá 8:45.

19. ágúst: Opnað fyrir stundatöflur og óskir um töflubreytingar í INNU

Stundatöflur verða aðgengilegar í INNU þriðjudaginn 19. ágúst og þá verður einnig hægt að óska eftir töflubreytingum. Töflubreytingar fara fram í INNU 18.-21. ágúst. 

22. ágúst: Síðasti dagur fyrir dagskólanema til að velja fjarnámsáfanga

Hlökkum til að hitta ykkur öll!